Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

ÞJÓNUSTUSKILMÁLAR VEGNA VEF- OG TÖLVUPÓSTHÝSINGARÞJÓNUSTU HJÁ NETHÝSINGU EHF

 

  • SAMÞYKKT Á ÞJÓNUSTUSKILMÁLUM
  1. Þú samþykkir hér með, fyrir þína eigin hönd eða fyrir hönd, annars einstaklings, fyrirtækis eða persónu að lögum sem þú mátt skuldbinda (hér eftir kallað "áskrifandi"), að lúta eftirfarandi þjónustuskilmálum.

 

  • SAMÞYKKT Á ÞJÓNUSTUSKILMÁLUM
  1. Með því að haka í til samþykktar þessara skilmála samþykkir áskrifandi að lúta eftirfarandi þjónustuskilmálum. Samþykki skilmálanna er skilyrði þess að áskrifandi megi nota þjónustu Nethýsingar ehf., en með þjónustu er átt við net, vélbúnað, hugbúnað og tækniaðstoð Nethýsingar ehf. Áskrifandinn samþykkir að lúta öllum þeim skilyrðum sem fram koma í skilmálum þessum. Skilmálarnir eru samningur milli Nethýsingar  ehf. og áskrifandans og taka gildi við samþykki áskrifandans.
  2. Áskrifandi lýsir yfir og ábyrgist að hann sé fullra átján ára að aldri, fjár síns ráðandi og að fullu sjálfráða ef hann er einstaklingur, en sé áskrifandi fyrirtæki eða persóna að lögum að hann sé til þess bær að taka á sig þær skuldbindingar sem skilmálar þessir greina. Ennfremur lýsir áskrifandi því yfir og ábyrgist að allar upplýsingar sem hann hefur gefið Nethýsingu ehf. séu réttar, fullnægjandi og í gildi og að hann muni framvegis ætíð gefa Nethýsingu  ehf. upplýsingar sem eru réttar, fullnægjandi og í gildi við endurnýjun og skráningu þjónustu. Áskrifandi lýsir yfir og ábyrgist að hann muni upplýsa Nethýsingu  ehf. um breytingar á öllum upplýsingum til að Nethýsing  ehf. Hafi ætíð réttar, fullnægjandi og gildandi upplýsingar. Viðkomandi lögráðamenn geta gert samning við Nethýsingu  ehf. fyrir hönd ólögráða eða ófjárráða einstaklinga og þurfa þá að hafa samþykkt notkun hins ólögráða eða ófjárráða á þjónustu Nethýsingar  ehf. Lögráðamaður tekur á sig allar skyldur og ábyrgð sem leiða af þeim þjónustusamningi sem við á hverju sinni og þessum þjónustuskilmálum.
  3. Nethýsing  ehf. mun kappkosta að veita áskrifendum sínum afbragðsgóða þjónustu á sviðum vef- og tölvupósthýsingar, sýndarþjónareksturs og nafnaþjónareksturs og fylgjast ávallt vel með öllum nýjungum á þeim sviðum þannig að þjónustan sé alltaf eins góð og mögulegt er. Vegna hraðrar þróunar og mikilla breytinga á tækni- og lagaumhverfi , og vegna breytilegra þarfa einstakra notenda sem og notenda almennt, áskilur Nethýsing  ehf. sér þann rétt til að breyta, bæta við eða fjarlægja hvern einstakan eða alla hluta þessara þjónustuskilmála hvenær sem er, fyrirvaralaust og án viðvörunar.
  4. Áskrifendur geta séð gildandi útgáfu þessara skilmála hverju sinni á www.nethysing.is/skilmalar.  Öll notkun á þjónustu Nethýsingar ehf. Eftir breytingar, viðbætur, eða fjarlægingu á þessum skilmálum, í heild eða að hluta, felur í sér samþykki áskrifandans á öllum slíkum breytingum, viðbótum eða fjarlægingu. Ef áskrifandi samþykkir ekki slíkar breytingar, viðbætur eða fjarlægingu á skilmálum stendur honum það úrræði til boða að segja upp áskrift sinni samkvæmt þriðja hluta þessara skilmála.

 

  • TÍMABIL - GREIÐSLUR - ENDURNÝJUN ÞJÓNUSTUSAMNINGS
  1. Samningssamband milli Nethýsingar ehf. og  áskrifanda kemst á þegar áskrifandi samþykkir þessa skilmála og lýkur með þeim hætti sem lýst er í gr. 2.04 og 3.01.
  2. Áskrifandi samþykkir að greiða öll viðeigandi þjónustugjöld samkvæmt verðskrá eða í samræmi við tilboð sem í gildi eru þegar pöntun eða endurnýjun á þjónustusamningi er gerð.
  3. Fjórtán dögum áður en þjónustusamningur rennur út, er Nethýsingu  ehf.  heimilt að endurnýja þjónustusamning áskrifanda til jafn langs tíma og áskrifandi valdi í upprunalegri pöntun sinni á þjónustu Nethýsing ehf.  Í því tilviki gildir almenn gjaldskrá Nethýsingar  ehf. en ekki þau sérstöku tilboð sem Nethýsing  ehf. kann að hafa í boði á þeim tíma sem endurnýjun á sér stað og gjald fyrir tímabilið verður innheimt með þeim hætti er áskrifandi valdi upprunalega sem greiðsluaðferð fyrir þjónustu Nethýsing  ehf.  Áskrifandi fellst á að Nethýsing ehf. framkvæmi sjálfvirka endurnýjun þjónustusamnings með þeim hætti er að ofan greinir. Áskrifandi fellst á að endurnýjun þjónustusamnings sé á ábyrgð áskrifanda sjálfs og að á Nethýsing  ehf.  hvíli engin skylda til sjálfkrafa endurnýjunar þjónustusamnings. Áskrifandi fellst á að ef Nethýsing  ehf. nýtir ekki heimild sína til sjálfkrafa framlengingar og áskrifandi hefur ekki sjálfur endurnýjað áskrift sína, þá falli hún, og þjónusta henni tengd, niður á þeim degi er gildandi áskrift fellur úr gildi.
  4. Til að stöðva sjálfvirka endurnýjun þjónustusamnings þarf áskrifandi að tilkynna Nethýsingu ehf. um það fimmtán dögum áður en áskrift fellur úr gildi með tölvupósti á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Í tölvupóstskeyti skal áskrifandi gefa nánari upplýsingar um áskriftina. Nethýsing  ehf. fellst á að berist slíkur tölvupóstur á tölvupóstfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. a.m.k. fimmtán dögum áður en áskrift rennur út verði áskrifandi ekki krafinn um frekari áskriftargjöld vegna viðkomandi áskriftar og að þjónusta falli niður á þeim tíma sem áskrift rennur út.
  5. Ef áskrifandi er ekki einstaklingur heldur fyrirtæki, félag eða  persóna að lögum lofar sá sem gerir eða endurnýjar þjónustusamning fyrir hönd slíks áskrifanda að hann hafi umboð og leyfi til að skuldbinda áskrifandann með þeim hætti er þessir skilmálar greina.

 

  • UPPSÖGN ÞJÓNUSTUSAMNINGS – ENDURGREIÐSLUR
  1. Nethýsing  ehf. veitir 14 daga endurgreiðsluábyrgð á allri seldri þjónustu, nema skráningu léna og sölu á SSL skírteinum. Þetta þýðir að ef afturköllun á þjónustubeiðni berst Nethýsingu ehf. innan 14 daga frá pöntun mun Nethýsing  ehf. endurgreiða áskrifanda þjónustugjöld er áskrifandi hefur reitt af hendi. Hafi áskrifandi greitt Nethýsingu  ehf. fyrir skráningu léns, heldur áskrifandi réttindum vegna þeirrar skráningar, enda er engin endurgreiðsluábyrgð á gjöldum vegna skráningar léna.
  2. Áskrifandi má segja upp áskrift sinni hvenær sem er á samningstímanum eftir fyrstu 14 daga samningsins og fyrir sjálfvirka endurnýjun þjónustusamnings. Mun þá Nethýsing  ehf. endurgreiða honum þau gjöld fyrir alla þá almanaksmánuði samningstímans sem ekki eru byrjaðir að líða þegar uppsögn berst. Þetta endurgreiðsluloforð á ekki við um gjöld vegna lénaskráninga eða sölu á SSL skírteinum, sbr. gr. 3.01 þessara skilmála.

    Áskrifandi skal tilkynna uppsögn á áskrift sinni á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

    Ef áskrifandi fer ekki að ofangreindum leiðbeiningum um uppsögn á áskrift sinni er áskrifandi ábyrgur fyrir 6275 kr. Vinnugjaldi vegna bókhaldsvinnu.
  • HUGVERKARÉTTINDI OG VIÐSKIPTALEYNDARMÁL

    Skilmálar þessir veita áskrifanda engin réttindi tengd hugverkaréttindum Nethýsingar  ehf. er tengjast tækni, logóum eða vörumerkjum Nethýsingar  ehf.  Nethýsing  ehf. og áskrifandi binda það fastmælum að hvorugur aðilinn muni á nokkurn hátt, beint eða óbeint, reyna að komast að frumþulum, viðskiptaleyndarmálum eða öðrum málefnum hins.
  • ÖRYGGI OG EIGNARHALD
  1. Áskrifandi er að fullu ábyrgur fyrir varðveislu og notkun allra auðkenna sem Nethýsing ehf. afhendir honum, s.s. lykilorðum, notendanöfnum o.fl. Þá er áskrifandi jafnframt ábyrgur fyrir allri notkun á þeim afleiðingum af notkun þeirra. Jafnframt er áskrifandi ábyrgur fyrir allri notkun á þeim lénum sem eru á hans vegum á kerfum Nethýsing  ehf. Áskrifandi lofar að láta Nethýsingu ehf. Vita tafarlaust ef grunur vaknar um að auðkennisupplýsingar hafi mögulega komist í hendur óviðkomandi, ef trúnaðaröryggi auðkennisupplýsinga er með einhverjum hætti ógnað eða ef grunur vaknar um óheimila notkun á þjónustu og kerfum Nethýsingar  ehf.  Nethýsing ehf. verður ekki gert ábyrgt fyrir skaða eða tjóni sem hljótast kann af notkun auðennisupplýsinga sem afhentar hafa verið áskrifanda.
  2. Þegar stofnað er til þjónustusamnings milli áskrifanda og Nethýsingar  ehf. verða færðar til bókar eftirfarandi upplýsingar frá áskrifanda: 1) Nafn áskrifanda, 2) virkt tölvupóstfang áskrifanda, 3) Notendanafn sem áskrifandi kann að velja sér 4) Aðgangsorð notanda 5) Virkt símanúmer áskrifanda og  6) Greiðsluupplýsingar, þ.e.a.s. heimilisfang, upplýsingar um greiðslumiðil, o.s.frv., í samræmi við lög um meðhöndlun slíkra upplýsinga.
    Verði farið fram á afhendingu aðgangsupplýsinga mun Nethýsing  ehf. ekki afhenda slíkar upplýsingar nema viðkomandi leggi fram eftirfarandi upplýsingar: a) Nafn áskrifandans sem um ræðir, b) Tölvupóstfang áskrifandans eins og það er í bókum Nethýsingar ehf., c) Notendanafn áskrifandans, d) Greiðsluupplýsingar áskrifandans. Einnig mun Nethýsing ehf. afhenda aðgangsupplýsingar þeim er framvísar dómsúrskurði um slíka afhendingu.
  3. Áskrifandinn fellst á ofangreint fyrirkomulag um aðgengi að aðgangsupplýsingum og leysir Nethýsing  ehf. undan allri ábyrgð á skaða sem verða kann vegna þess að Nethýsing ehf. Framfylgir fyrirkomulaginu.

  • PERSÓNUUPPLÝSINGAR, UPPLÝSINGA- OG PERSÓNUVERND
  1. Nethýsing ehf. lofar að vernda upplýsingar, þ.á.m. persónuupplýsingar um áskrifanda, með þeim ráðum sem tiltæk eru innan eðlilegra kostnaðarmarka.
  2. Nethýsing  ehf. lofar að afhenda ekki þriðja aðila upplýsingar um áskrifanda, nema skv. lögum, dómsúrskurði eða  í þeim tilvikum sem nauðsynlegt er að fá þriðja aðila til að rannsaka möguleg brot á þessum skilmálum eða öðrum samningum milli Nethýsingar  ehf. og áskrifanda. Nethýsing  ehf. mun ekki afhenda þriðja aðila upplýsingar til notkunar við markaðssetningu vöru eða þjónustu.

 

  • FYRIRKOMULAG Í DEILDRI HÝSINGU
  1. Vefhýsing Nethýsingar  ehf. er svokölluð deild hýsing, e. Shared hosting service. Það þýðir að margir áskrifendur deila með sér vélbúnaði og/eða sýndarvélbúnaði.  Vefhýsingarþjónustu Nethýsing ehf. er ætlað að uppfylla vefhýsingarþarfir einstaklinga og smærri félaga og fyrirtækja, en ekki þarfir fjölmiðla eða stærri fyrirtækja sem þurfa aðgang að mikilli og stöðugri kerfisgetu, vegna vef- eða póstrekstrar síns.  Nethýsing  ehf. áskilur sér allan rétt til að færa þjónustu áskrifanda milli véla og/eða sýndarvéla til að tryggja jafnvægi í notkun vélbúnaðar, eða í hverjum þeim öðrum tilgangi sem Nethýsingar  ehf. álítur nauðsynlegan eða hagkvæman.
  2. Nethýsing  ehf. áskilur sér allan rétt til að slökkva á eða hamla notkun á þjónustu áskrifanda, tímabundið eða endanlega, ef Nethýsing  ehf. álítur að: 1) notkun áskrifanda á þjónustunni valdi, eða geti valdið, truflunum á rekstri þjónustu annarra notenda í deildri hýsingu, 2) vefur eða þjónusta áskrifanda hafi verið "hökkuð" eða sé af einhverjum ástæðum undir stjórn annarra en áskrifanda sjálfs, 3) að verið sé að brjóta lög eða siðferðisviðmið sem Nethýsing ehf. telur eðlilegt að gera kröfu um að virt séu af áskrifendum hverju sinni. Ef Nethýsing ehf. ákveður að stöðva þjónustu endanlega gilda ákvæði  gr. 3.02 um endurgreiðslu á hýsingargjöldum.

 

  • ÓHEIMIL NOTKUN VEFHÝSINGARÞJÓNUSTU
  1. Útsendingar á ruslpósti, (unsolicated commercial email) eru bannaðar á þjónum  Nethýsingar ehf. og leiða til tafarlausrar stöðvunar allrar þjónustu áskrifanda. Þetta á við um allan fjöldapóst á póstlista eða sambærilega hópa þar sem móttakendur hafa  ekki gefið samþykki sitt fyrir sendingunum, að mati Nethýsingar  ehf., eða ef ómögulegt eða torvelt er fyrir móttakendur að segja sig af slíkum lista, einnig að mati Nethýsingar ehf.
  2. Bannað er að bjóða, selja eða tengja við aðrar vefsíður sem bjóða, selja eða sýna eftirfarandi varning: a) Ávana- eða fíkniefni og/eða vörur eða þjónustu því tengdar, b) Vopn, c) Höfundarréttarvarið efni sem áskrifandi hefur ekki rétt til að bjóða eða selja, d) upplýsingar til að brjóta höfundarrétt eða vörumerkjaréttindi annarra, e) upplýsingar til að framleiða, búa til eða útvega ólöglegan varning eða vopn, f) klámefni eða kynlífsvarning, g) skráardeilingu h) annað ólöglegt, skaðlegt eða siðferðislega ámælisvert efni eða upplýsingar, að mati Nethýsingar ehf.
  3. Nethýsing ehf. áskilur sér fullan og skilyrðislausan rétt til að meta hvort lokað verði á þjónustu til áskrifanda, með eða án fyrirvara, ef Nethýsing  ehf. álítur efni það sem áskrifandi vistar ólöglegt, siðlaust eða skaðlegt. Eingöngu mat Nethýsingar ehf. gildir í þessum efnum.  Áskrifandi afsalar sér öllum bótakröfum á hendur Nethýsingar ehf. Vegna mögulegs tjóns sem ákvörðun tekin á þessum forsendum kann að valda honum.

 

  • YFIRLÝSING UM TAKMÖRKUN ÁBYRGÐAR
  1. Áskrifandi, skilur og fellst á að þjónusta sú, er Nethýsing  ehf. lofar að veita, er veitt eftir bestu getu starfsmanna Nethýsingar ehf. á hverjum tíma, án nokkurrar ábyrgðar af hálfu Nethýsingar  ehf. um gæði, áreiðanleika, hraða, villuleysi eða virkni. Áskrifandi fellst á þetta fyrirkomulag og afsalar sér öllum bótakröfum á hendur Nethýsingar ehf.  sem kunna að stofnast af völdum villna, bilana, aðgengisskorts, gagnataps, minnkaðs hraða eða skorts á virkni þeirrar þjónustu sem Nethýsing ehf. veitir. Gildir þetta án tillits til sakar starfsmanna Nethýsingar  ehf.
  • VARNARÞING OG LÖG
  1. 1.Um skilmála þessa fer að íslenskum lögum. Mál sem kunna að rísa út af þeim skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.