Vandaðar heimasíður
Vefhönnun okkar skiptist í þrjá verðflokka eftir því hvort um er að ræða:
- Litlar heimasíður
- Miðlungs heimasíður
- Stórar heimasíður.
Allar okkar heimasíður eru með sérútliti. Auðvelt er að uppfæra þær með Joomla vefumsjónarkerfinu og þeim fylgir ekkert mánaðargjald.
Lítil heimasíða. Verð frá kr. 79.000 – 119.000. Vönduð vefsíða sem fullnægir þörfum fjölmargra fyrirtækja um framsetningu á efni. Möguleiki er á undirflokkum í efnisvísi (menu), frétta- eða greinakerfi, myndagalleríi, póstlista og fleiru. Nákvæmt verð ræðst af umfangi verksins og er samkvæmt föstu verðtilboði.
Miðlungs heimasíða. Verð frá kr. 119.000 – 170.000. Hentar fyrirtækjum sem þurfa vef með flóknari byggingu, svo sem þreföldum efnisvísi, eða sérsniðnum undirsíðum. Þessi verðflokkur gefur einnig meiri möguleika á viðbótarkerfum, svo sem sérstökum myndaeffektum, viðbótar tungumálum, skoðanakönnunum eða öðrum gagnvirkum kerfum. Nákvæmt verð ræðst af umfangi verksins og er samkvæmt föstu verðtilboði.
Stórar heimasíður. Verð frá kr. 170.000. Nethýsing tekur að sér smíði á stærri vefsvæðum, svo sem ferðavefum, samskiptavefum eða vefum með sölu- eða pöntunarkerfum.
Innifalið í verði á heimasíðum er ráðgjöf við skipulagningu og framsetningu á efni og innsetning á upphafsefni samkvæmt samkomulagi. Kennsla á vefumsjónarkerfið fylgir. (efnisöflun, þýðingar og textagerð er að öllu jöfnu ekki innifalið nema um það sé samið sérstaklega).
Joomla vefumsjón styður helstu vafra á markaðnum og hægt er að vinna í kerfinu í Internet Explorer 8 (IE8), Firefox, Safari, Google Chrome og Netscape.
Við leggjum áherslu á að hanna vefi sem eru aðgengilegir og auðveldir í notkun fyrir hvern sem er og uppfylla skilyrði W3C (World Wide Web Consortium).Vefumsjónarkerfið frá Joomla er sérlega aðgengilegt, kraftmikið og þægilegt í notkun og gefur notandanum mikið svigrúm.
Nethýsing sérhæfir sig í hýsingu og þjónustar vefi sem eru hannaðir í Joomla vefumsjónarkerfi (CMS). Joomla er fullbúið vefumsjónarkerfi hannað í PHP (Programmable Hypertext Protocol) og keyrir á Unix-netþjóni.
Internetið er sífellt að verða mikilvægari þáttur í markaðsstarfi fyrirtækja. Góð markaðssetning á vörum og þjónusta á netinu getur verið afar hagkvæm og er það markmið okkar að auðvelda fyrirtækjum að beita réttum vinnubrögðum þegar kemur að markaðssetningu á internetinu.
Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér.
|