|
Top 10 af hverju netafrit?
1. Afrit eru tekin sjálfvirkt Afrit eru gerð sjálfkrafa. Því er mannleg íhlutun óþörf. Hægt er að skilgreina af hverju á að taka öryggisafrit . Möppum eða einstökum skjölum.
2. Ytra afrit Með netafritun er tekið afrit af gögnum þínum og þau send á örugga netþjóna hjá okkur. Þetta útilokar hættur á gagnatapi vegna þjófnaðar og bruna, þar sem eitt afrit er alltaf til utanhúss.
3. Hugarró Eftir að Netafritunarbúnaðurinn hefur verið settur upp virkar hann sjálfvirkt, þú færð tölvupóst með uppfærðri stöðu. Það sparar tíma og þar af leiðandi peninga.
4. Stöðugur aðgangur Með netafritun eru gögnin þín stöðug og alltaf í boði. Ef þú tapar gögnum getur þú strax endurheimt þau á netinu.
5. Öryggi Dulkóðun gagna, og örugg internetstenging tryggir hámarks persónuvernd. Aðeins þú hefur aðgang að gögnunum.
6. Engin fjárfesting í upphafi Netafritun er þjónusta. Fyrir fasta þóknun á mánuði færð þú örugga afritunartöku og geymslu á gögnum þínum, án þess að þurfa að fjárfesta í vél-eða hug-búnaði.
7. Lágur kostnaður á eignarhaldi Netafritunarhugbúnaðinn þarf bara setja upp einu sinni, eftir það eru öll afrit keyrð sjálfkrafa í gagnageymslu. Eftirlit er mjög einfalt, þægilegt og öruggt.
8. Endurheimting gagna Að endurheimta gögn er mjög einfalt og þægilegt. Þú velur það afrit af gögnum sem þig vantar og velur staðsetningu. Á skömmum tíma eru skrár og möppur aftur á tölvunni þinni.
9. Útgáfur Þú getur valið að taka öryggisafrit af mörgum útgáfum af skrám. Breyttar skrár eru geymdar sem ný útgáfa. Þetta leyfir þér að fara aftur í tímann í óbreytt gögn.
10. Sjálfvirkar skýrslur, auðvelt að fylgjast með Hægt er skoða skýrslur í afritunarhugbúnaði og í gegnum tölvupóst, um hver staðan er á afritunartöku. Það tryggir að þú hafir alltaf nýjustu upplýsingar um stöðuna.
|